Tónleikasalur

Við erum með 115 m² fallega hljómandi tónleikasal þar sem við höldum reglulega viðburði og tónleika. Hægt er að leigja salinn fyrir ráðstefnur, fundi eða persónulega viðburði á borð við brúðkaup, afmæli, ættarmót og fleira. Salinn má leigja með hljóðkerfi og þjónustu hljóðmannsins okkar. Ef þú hefur áhuga á að koma fram í tónleikasalnum okkar eða leigja hann fyrir viðburð, hafðu samband.








