Hljóðmaðurinn okkar

Vinny

Hljóðverinu er stýrt af hljóðmanninum okkar, Vincent Wood. Með yfir áratug af reynslu af tónlistarupptökum í heimalandi sínu Írlandi hefur Vinny tekið upp allt frá strengjakvartettum til pönks, þjóðlagatónlist til metals og margt þar á milli. Hann er heltekinn af hliðrænu hljóði (analog), og þar liggur ástæðan fyrir því að Studio Silo sérhæfir sig í því.

Vinny er einnig menntaður rafeindaverkfræðingur og hefur smíðað tæki frá unga aldri. Með því að sameina tvær ástríður sínar í lífinu — rafeindatækni og tónlist — hefur hann þróað hæfileikann til að hanna og smíða alls kyns hljóðtæki, sem mörg hver er að finna í Studio Silo. Sköpunarverk Vinnys eru undir vörumerkinu Atomic Analog og hér má skoða nokkur þeirra.

Styrkt af