Markmið og tilgangur
Markmið og tilgangur starfsemi Sköpunarmiðstöðvarinnar er að efla byggðaþróun á Stöðvarfirði og í héraðinu öllu. Áherslan er á að auka lífsgæði íbúa og bæta þjónustustig á svæðinu með því að efla aðgengi að menningu, menntun og nýsköpunarvettvangi.
Starfsemin stefnir að því að:
- Tryggja að börn og ungmenni á Austurlandi hafi aðgang að fjölbreyttu listnámi í heimabyggð.
- Veita íbúum Austurlands aðgang að fjölbreyttum hágæða tónlistar- og listviðburðum í heimabyggð.
- Tryggja nærveru alþjóðlegra listamanna og tónlistarfólks á svæðinu, sjá til þess að alþjóðlegt menningarflæði lífgi upp á héraðið og gefa íbúum tækifæri til að tengjast listafólki og tónlistarfólki hvaðanæva að úr heiminum.
- Tryggja að íbúar Austurlands hafi aðgang að faglegri þjónustu og aðstöðu fyrir alls kyns sköpun og iðkun á sviði lista og hönnunar í heimabyggð.
- Þróa vettvang með sérstaka áherslu á atvinnusköpun í skapandi greinum, þjónustu og tengdum smáiðnaði, sem og atvinnusköpun sem hlýst af nýtingu og vinnslu hráefna og auðlinda Austurlands.
- Styrkja og þróa sjálfsmynd svæðisins sem framsækið menningar- og nýsköpunarsamfélag.