Hvernig á að komast hingað

Stöðvarfjörður er í um 630 km fjarlægð frá Reykjavík. Til að komast frá Reykjavík til Stöðvarfjarðar mælum við með því að bóka flug frá Reykjavík til Egilsstaða, en einnig er hægt að taka rútu eða leigja bíl. Ef þú kemur með ferjunni lendir þú á Seyðisfirði, í um 98 km fjarlægð frá Stöðvarfirði.
Hér eru nokkrar upplýsingar til að skipuleggja ferðina.
Þegar þú flýgur til landsins lendir millilandaflugið á Keflavíkurflugvelli. Frá Keflavíkurflugvelli er um klukkustundar rútuferð inn í miðborg Reykjavíkur. Flugrútan stoppar við BSÍ (umferðarmiðstöðina í Reykjavík).
BSÍ er í stuttri fjarlægð frá Reykjavíkurflugvelli (innanlandsflug). Þaðan getur þú tekið flug til Egilsstaða. Við sækjum þig þangað við komu, en athugaðu að akstur okkar takmarkast við 1. og 2. dag dvalartímabilsins, miðað við morgunflug.
Ef þú velur að taka rútu getur þú einnig tekið hana frá BSÍ. Við mælum með norðurleiðinni frá Reykjavík til Egilsstaða. Við sækjum þig svo á Egilsstaði við komu.
Ef þú kemur með ferjunni á Seyðisfirði, taktu rútu þaðan til Egilsstaða og við sækjum þig þangað við komu.
Ef þú ætlar að leigja bíl mælum við með suðurleiðinni, Reykjavík – Vík – Höfn – Stöðvarfjörður. Við ráðleggjum að líta á það sem valkost aðeins yfir vor- og sumartímann, frá maí til september. Veður á Íslandi er mjög óútreiknanlegt og yfir vetrartímann getur þetta verið hættuleg og erfið ferð.
Gagnlegir hlekkir
Milli- og innanlandsflug
Icelandair
Ferja til Íslands
Smyril Line